Trékyllisheiðarhlaupið fór fram í 6. sinn laugardaginn 15. ágúst sl. í fremur hægum vindi og björtu veðri. Keppendur nýttu veðrið vel og bættu hvorki meira né minna en fimm brautarmet af átta. Þar bar hæst framúrskarandi árangur Sigurjóns Ernir Sturlusonar, sem bætti brautarmet Felix Starker í 48 km hlaupinu um hvorki meira né minna en 33 mínútur, hljóp á 3:33:00 klst. Þetta er jafnframt langbesti árangur sem náðst hefur í Trékyllisheiðarhlaupinu frá upphafi, mælt í ITRA-stigum, en Sigurjón fékk 873 stig fyrir afrekið. Það er jafnframt hæsta skor Sigurjóns frá upphafi, en hann situr nú í 3. sæti yfir bestu utanvegahlaupara Íslands skv. styrkleikalista ITRA. Þess má geta að Felix var í 2. sæti í hlaupinu, en hann var nú að mæta fjórða árið í röð.
Eiginkona Sigurjóns, Simona Vareikaite, bætti einnig brautarmet kvenna í 48 km hlaupinu, hljóp á 4:50:22 klst. Það er tæplega 9 mín bæting á meti Lilli Ofstad frá árinu 2022 og jafnframt besti árangur konu í Trékyllisheiðarhlaupinu frá upphafi (skv. ITRA), þvert á vegalengdir.
Í 26 km hlaupinu (Djúpavíkurleiðinni eða Þorbergsleiðinni) hljóp Ástmar Helgi Kristinsson á 2:02:35 klst. og bætti brautarmet Þorgeirs Arnarssonar frá 2023 um 14 mínútur. Ástmar missti hins vegar metið sem hann setti í 16,5 km hlaupinu 2023 til Vladans Krzelj frá Serbíu, en hann vann hlaupið á 1:17:12 klst, sem er 2 mín bæting á meti Ástmars. Loks setti Styrmir Sigfríðarson brautarmet í 3,7 km hlaupinu, sem hann lauk á 20:07 mín. Þar átti Haraldur Vignir Ingólfsson fyrra metið, 22:23 mín frá því í fyrra.
Samtals komu 78 hlauparar í mark þetta árið, sem er með mesta móti. Flestir voru keppendur í fyrra, 82 talsins. Skíðafélag Strandamanna þakkar öllum þátttakendum, starfsfólki og styrktaraðilum fyrir ómetanlegan þátt þeirra í framkvæmd hlaupsins.
Úrslit hlaupsins eru komin inn á úrslitasíðuna.
Á myndinni sem fylgir má sjá verðlaunahafana í Trékyllisheiðin Mini (16,5 km) í kvennaflokki. F.v. Birna Dröfn Vignisdóttir (2. sæti), Sigríður Dröfn Óðinsdóttir (1. sæti) og Ásdís Helga Ingólfsdóttir (3. sæti).
