Nú eru þrír mánuðir í að Trékyllisheiðarhlaupin verði ræst í 6. sinn laugardaginn 15. ágúst nk. Skráning er komin vel af stað á Netskraning.is – og um að gera að tryggja sér miða sem fyrst. Sem fyrr verða fjórar vegalengdir í boði, þ.e.a.s.:
- Trékyllisheiðin Ultra, 48 km alla leið úr Trékyllisvík
- Trékyllisheiðin Midi, 26 km frá Djúpavík
- Trékyllisheiðin Mini, 16 km af Bjarnarfjarðarhálsi
- Trékyllisheiðin Junior, 4 km leið í Selárdal
Trékyllisheiðin er rétta hlaupið fyrir fólk sem vill hlaupa um fáfarnar slóðir þar sem velvild og gestrisni eru í aðalhlutverkum. Og auðvitað gefa öll hlaupin ITRA-stig.
Skráning á https://netskraning.is/trekyllisheidin/.
