
Trékyllisheiðarhlaupið verður haldið í fjórða sinn laugardaginn 17. ágúst 2024. Í boði verða sömu vegalengdir og síðasta ár, þ.e.a.s. Trékyllisheiðin Ultra (48,4 km), Trékyllisheiðin Midi (25,7 km), Trékyllisheiðin Mini (16,5 km) og Trékyllisheiðin Junior (3,7 km). Opnað verður fyrir skráningu á næstu dögum (í janúar 2024).
Takið daginn frá og fylgist spennt með!
